Dvel ég í draumahöll og dagana lofa
föstudagur, febrúar 20, 2009
 
Bloggari þessi er upptekinn á fésbók eða að hrista fiskimjöl. Reynið aftur síðar.
 
þriðjudagur, desember 23, 2008
  Jól

Elsku þú.

Gleðileg jól!
Megirðu borða yfir þig af reyktu kjöti, laufabrauði og smákökum.

Jólaknús,
Ég.
 
þriðjudagur, desember 09, 2008
 


Tannkremið leysti vandann.
 
föstudagur, desember 05, 2008
 
Ég er svo pirruð! Ég þoli ekki labbdverginn*!

*Labbdvergur=snarillur dvergur sem skemmir allar niðurstöður á labbi** að öllum líkindum bara sér til dundurs.
**labb=tilraunastofa
 
miðvikudagur, nóvember 26, 2008
  spóla er spóla er spóla
Pabbi skilaði spólu.

Ég skilaði líka spólu í gær. Á Snæland.
Enginn spólandi vitlaus yfir því.
 
þriðjudagur, október 28, 2008
  Górilluvarnir
Mér finnst mjög skemmtilegt að einhver hafi rambað inn á bloggið mitt með leitarorðunum Túrilla Blúmenberg á gúgúl.
 
miðvikudagur, október 22, 2008
 
Í dag borðaði ég brauð. Með hnetusmjöri og sultu.

Ætli ég sé berdreymin?
 
laugardagur, október 18, 2008
 
Mig dreymdi brauð. Með hnetusmjöri og sultu.
 
miðvikudagur, október 08, 2008
  Broskallaóöryggi
Ég undrast fólk sem kann ekki að lesa nema að það séu þyrpingar broskalla hengdar aftan við annað hvert orð. Það skilur ekki hvort ritandinn sé reiður, kátur, leiður eða að grínast nema a.m.k. einn þessara: :) ;) :D :( sé viðhangandi.

Ég las blogg fyrir stuttu þar sem góðlátlegt grín kom við sögu. Lesandi tók því ekki á gamansaman hátt - því það var nefnilega ekki broskall með til að útskýra djókið. Lesandinn kom með þá ráðleggingu að best væri að bæta alltaf broskalli aftan við allt grín, til að koma í veg fyrir misskilning.

Mér finnst þetta skondið.

Kannski þurfum við á endanum að innleiða broskalla í skáldsögur og ljóð. Svo að enginn verði nú í nokkrum vafa hvað við sé átt. Ekki viljum við það.

Blikkukall.
 
fimmtudagur, september 25, 2008
  Forgangsröðun
Þegar allt var á rúi og stúi áðan (og er enn) þá byrjaði ég á því að endurraða 500 skópörum sem eru inni í skáp.
Það er ennþá allt í óreiðu. Eiginlega töluvert meira drasl en var áður.

Ég á nefnilega bara tvær tiltektarstillingar:

Stilling a) Ofurhraði. Öllu hent til, bókum staflað uppá skrifborð, fötum hent inn í skáp, einhverju sópað undir rúm. Tiltektartími: ca. 2 mín.

Stilling b) Lúshægt. Þá byrja ég á að endurraða frímerkjasafninu sem er lengst niðrí skúffu sem ég nota aldrei. Fjórum tímum seinna er ennþá allt í drasli - fyrir utan í einni skúffu. Tiltektartími á herbergi: ca. vika.

Held ég þurfi að endurskoða þessi stillingaratriði.
 
mánudagur, september 22, 2008
  Klukkan Kassíópeia
Ég var klukkuð af pabba.

1. Fjögur störf sem ég hef unnið:

Ritari á Landspítala
Garðálfur hjá RÚV
Götuleikari
Aðstoðarfréttamaður (eða einfaldara: skrifta)

2.Fjórar bíómyndir sem ég held uppá:

Stranger Than Fiction
The Sound of Music
Amelie
Stella í orlofi

3.Fjórir staðir sem ég hef átt heima á:

Nova Scotia
Innri-Njarðvík
Bloomington
Reykjavík

4.Fjórir sjónvarpsþættir sem ég horfi helst á:

Gilmore Girls
Little Britain
House
Boston Legal

5.Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

St. Pétursborg
Salamanca
London
Edinborg

6.Fjórar síður sem ég heimsæki daglega (reglulega):

betabaun
gpétur
facebook
vefpóstur Háskólans

7.Fjórir réttir sem mér finnst góðir:

kjúklingasalat
fiskisúpa
amerískar pönnukökur
ís

8.Fjórar bækur sem ég les amk. árlega:

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:

Harry Potter
Mómó
Jane Eyre
Pollíanna

Ég klukka. Líneyju. Kristjönu. Og Mömmu.
 
miðvikudagur, ágúst 20, 2008
  sush-uki


Rakst á þetta sushi á Seltjarnarnesinu í kvöld.
Vitiði, er venjan að borða sushi af bílþökum?
Bragðast wasabi kannski betur þannig?
 
miðvikudagur, ágúst 06, 2008
 
Ég er ennþá til.

Einhvern veginn samt bara flotið um. Enda nennir maður ekkert að vera að blogga svona á sumrin. Það er nefnilega oft sól. Það sem ég er samt búin að vera að gera undanfarið er sirka þetta:
Búin að smíða rúmgafl og náttborð. Búin að vinna alveg gommu sem skrifta. Búin að fara í ferðalag á Snæfellsnes í hávaðaroki og endað á að þurfa að sofa í bílnum og búin að hafa það kósí í sumarbústað. Búin að mæta á tríóæfingu án nótna. Búin að liggja úti í lyngi bara rétt fyrir utan heimilið mitt. Búin að sjá litla ofursæta og hárprúða strák frænku minnar. Búin að halda kökukvöld. Búin að komast að því að maður þarf að fara útí búð ef maður hefur áhuga á að nærast. Búin að sjá Batman. Búin að leita að vinnum en ekkert finna. Búin að ákveða að panikka ekki alveg strax samt, enda lífið of ágætt til að standa í panikki. Búin að lesa síðustu Harry Potter bókina aftur.
Búin að setja upp plötuspilarann minn og hlusta á lagið Poison Arrows með Mike Oldfield.
Búin að fara á mína fyrstu þjóðhátíð, rennblotna í dembunni, syngja mig hása í brekkunni og dansa eins og bavíani við söng Páls Óskars.

Lag dagsins: I'm Yours með Jason Mraz
Bók dagsins: A Long Way Down eftir Nick Hornby.
Frumefni dagsins: astatine
 
fimmtudagur, maí 29, 2008
  ,,Ásta mín, fylgistu ekkert með?"
Hef nokkuð oft lent í því að vera spurð að þessu.
Uppúr níu í kvöld fattaði ég að það hafi verið svaka jarðskjálfti fyrr í dag. Ojæja. Skil betur núna af hverju fréttastofan var að reyna að plata mig til að mæta rétt fyrir fréttir, en þá var ég bara nýkomin í sveitina.

Og móðir mín, þú færð fregnir (örugglega ekki nýjustu, því ég er alltaf síðust að frétta allt) af búskap mínum í innri-Njarðvík, tíðafari og gæftum þegar samband við umheiminn næst með nýjung sem nefnist internet á heimilinu.
 
Mestmegnis bull, en ef vel er gáð, hver veit? Kannski að þið rekist á eitthvað af viti...

Úmpalúmpar

Vilborg Sigga Sara Salóme Pabbi Margrét Mamma Lísa Líney Kristjana Kristín Katla Íris Hugi Hjálmar Héðinn Heiða Guðný Eyrún Björgvin Bjarnheiður Berglind Árni Bjöss Arngrímur
Úmpalúmpaleikföng

Stærðfræðiheimur Stigull Rithringurinn Mæspeisið Margt og merkilegt Ljóð.is Hvarf Hotmeil Háskólinn Dindill

Powered by Blogger



Fornrit

09/01/2003 - 10/01/2003 / 10/01/2003 - 11/01/2003 / 11/01/2003 - 12/01/2003 / 12/01/2003 - 01/01/2004 / 01/01/2004 - 02/01/2004 / 02/01/2004 - 03/01/2004 / 03/01/2004 - 04/01/2004 / 04/01/2004 - 05/01/2004 / 05/01/2004 - 06/01/2004 / 06/01/2004 - 07/01/2004 / 07/01/2004 - 08/01/2004 / 08/01/2004 - 09/01/2004 / 09/01/2004 - 10/01/2004 / 10/01/2004 - 11/01/2004 / 11/01/2004 - 12/01/2004 / 12/01/2004 - 01/01/2005 / 01/01/2005 - 02/01/2005 / 02/01/2005 - 03/01/2005 / 03/01/2005 - 04/01/2005 / 04/01/2005 - 05/01/2005 / 05/01/2005 - 06/01/2005 / 06/01/2005 - 07/01/2005 / 07/01/2005 - 08/01/2005 / 08/01/2005 - 09/01/2005 / 09/01/2005 - 10/01/2005 / 10/01/2005 - 11/01/2005 / 11/01/2005 - 12/01/2005 / 12/01/2005 - 01/01/2006 / 01/01/2006 - 02/01/2006 / 02/01/2006 - 03/01/2006 / 03/01/2006 - 04/01/2006 / 04/01/2006 - 05/01/2006 / 05/01/2006 - 06/01/2006 / 06/01/2006 - 07/01/2006 / 07/01/2006 - 08/01/2006 / 08/01/2006 - 09/01/2006 / 09/01/2006 - 10/01/2006 / 10/01/2006 - 11/01/2006 / 11/01/2006 - 12/01/2006 / 12/01/2006 - 01/01/2007 / 01/01/2007 - 02/01/2007 / 02/01/2007 - 03/01/2007 / 03/01/2007 - 04/01/2007 / 04/01/2007 - 05/01/2007 / 05/01/2007 - 06/01/2007 / 06/01/2007 - 07/01/2007 / 07/01/2007 - 08/01/2007 / 08/01/2007 - 09/01/2007 / 09/01/2007 - 10/01/2007 / 10/01/2007 - 11/01/2007 / 12/01/2007 - 01/01/2008 / 01/01/2008 - 02/01/2008 / 02/01/2008 - 03/01/2008 / 03/01/2008 - 04/01/2008 / 04/01/2008 - 05/01/2008 / 05/01/2008 - 06/01/2008 / 08/01/2008 - 09/01/2008 / 09/01/2008 - 10/01/2008 / 10/01/2008 - 11/01/2008 / 11/01/2008 - 12/01/2008 / 12/01/2008 - 01/01/2009 / 02/01/2009 - 03/01/2009 /