Dvel ég í draumahöll og dagana lofa
Fróðleiksmoli og grátandi kjötkássa
Síðasta leitarorð sem einhver notaði á gúglinu og endaði á síðunni minni var:
Finnkrisp.
Diskódiskódiskófriskó
Mælaborðið í bílnum misskildi hlutverk sitt í lífinu.
Það blikkaði áðan af öllum lífs og sálarkröftum, öllum ljósum sem það gat skartað. Rúðupissljósum, bensínljósum, service-ljósum og stefnuljósum.
Held að mælaborðið haldi að það sé diskókúla.
Auglýsingar
Klöppum fyrir pabbanum sem er að elda rónabrauð í morgunmat!
Klöppum fyrir bræðrunum sem syngja svo fallega eldsnemma á laugardagsmorgnum!
Klöppum fyrir stelpunni sem tók loksins bakköpp af tölvunni sinni!
(Þó fyrr (einu ári kannski) hefði verið)
Klöppum loks fyrir tilgangslausum bloggfærslum með sinnepi!
Psst - ef þér leiðist
...þá er ég að spila á tónleikum...
með sinfóníu hljómsveit Tónskóla Sigursveins
...spila einleik í ,,Little Music" eftir John Speight...
önnur verk eru Konsertínó fyrir píanó og hljómsveit, einnig eftir John Speight og Sinfónía nr. 9, sú ófullgerða eftir Franz Schubert
...Laugardagur 10. mars. Klukkan 5. Neskirkja...