er að prufa......
er annars í skólanum, og ætti kannski ekki að vera að leika mér í tölvunum :P
Daddara,
já ég var eiginlega bara hætt að blogga, en það er alltaf soldið spes þannig að kannski mun ég blogga endrum og eins bara fyrir mig :P
Vásí, en alla vega er ég greinilega alveg komin úr æfingu því að ég hef ekkert að segja!!
Hmmmm,
vá eins gott að ég ætla ekki að leggja það fyrir mig að verða skáld!
í dag er sunnudagur. Sko hvað ég er klár!!!! Veit meira að segja hvaða dagur er í dag, ég hef sjaldan verið eins stolt!!
Skil ekki að ég hafi sagt að ég hafði ekkert að segja!!
Til að mynda get ég deilt með ykkur þeirri vitneskju sem að ég sankaði að mér eftir hinum ýmsu krókaleiðum; á morgun er mánudagur!!!
Veit að það eru frekar fáir sem að hafa haft fregnir af þessu en nú ætla ég bara að deila því til allra þeirra dyggu blogglesenda minna. Ohh, ég er svo góð!
Fjölskyldan mín var að láta pússa allt parketið upp eldhúsinu og svo að láta lakka yfir það aftur. Síðan tók hún móðir mín eftir því þegar að hún mundaði kústinn að gólfinu að það var þarna einhver stærðarinnar hrossafluga sem að bifaðist ekki sama hve mikið hún sópaði og sópaði. Fluguræfill hafði nefnilega ákveðið að fá sér sæti á gólfið við ísskápinn á meðan lakkið var enn blautt og nú liggur hún þar í öllu sínu veldi og henni verður ekki haggað!! Lakkið er ekki enn fullþornað, þó að það sé snertiþurrt. Og ef einhvejar tilranunir verða gerðar til að fjarlægja hana eyðileggst lakkið. Þetta er svona frekar sorglegakómískt.